hæpæ

þá sit ég hérna bara í vinnunni og "tjilla".. við erum bara búin með allt sem þarf að gera í bili þannig að það er bara ansi rólegt hérna.... 

Annars var ég eiginlega bara að koma úr "löngu" og góðu fríi, alveg heilir 32 tímar af engri vinnu.. tók mig reyndar til og heimtaði að Ingi myndi hjálpa mér að taka til og þá var bara skúrað og öll fötin okkar sem voru óhrein þvegin og ég veit ekki hvað og hvað, svo bara allt hengt út á snúru í góða veðrinu...

 

msndollzu_1377142513

Var líka að vinna næturvakt aðfaranótt miðvikudags og svo gerði ég held ég barasta ekki neitt á miðvikudagskvöldið, fór jú út að hlaupa aðeins einhverntíman eftir 23:00.. Svo bara í gær þá hélt ég áfram að þvo, svaf bara aðeins út og skutlaði ömmu einhvað.. Fór svo bara í bónus og splæsti í kjúklingabringur og grillaði þær, Ingi kom svo akkurat heim þegar ég var að grilla... Svo seinnipartinn lagði ég bara af stað í Borgarnes og hékk bara aðeins heima og viti menn, það var grillaður kjúklingur í matinn... Svo mætti ég bara á æfingu, fyrst í skóm af Elfari sem voru eins og skautar en svo í eldgömluskónnum mínum sem eru alveg drulluskítugir...

En jæja, ég er að hugsa um að gera einhvað annað en að hanga í tölvunni..

 

InLove Gunnfríður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Voða gaman í Þórsmörk;)

Ingi (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband